Eos

Skilmálar og persónuvernd

Útgáfa 2026-11-23 · gildir fyrir Fasteignavaktina, Bílasöluvaktina, Uppboðsvaktina og aðra vefi á eos.is.

Hvað við vistum

Til hvers

Til að veita þér aðgang, halda utan um eftirlæti, tryggja öryggi (t.d. greina misnotkun og sjálfvirka söfnun) og bæta vefina. Upplýsingarnar eru ekki seldar né afhentar þriðja aðila nema lög krefjist.

Aðgangur

Aðgangur er veittur að mati umsjónaraðila eftir að netfang hefur verið staðfest. Við áskiljum okkur rétt til að loka aðgangi hvenær sem er og án fyrirvara, t.d. ef grunur er um misnotkun, sjálfvirka gagnasöfnun eða brot á skilmálum. Gögn á vefjunum eru til upplýsinga og án ábyrgðar.

Vafrakökur

Við notum aðeins nauðsynlegar vafrakökur – engar auglýsinga- né rakningarkökur og engar frá þriðja aðila:

Vefirnir muna líka val á ljósu/dökku þema í vafranum (localStorage). Kort og letur geta verið sótt af öðrum þjónum (t.d. OpenStreetMap, Esri, cdnjs), sem sjá þá IP-tölu þína en setja ekki kökur fyrir okkur.

Réttindi þín

Þú getur skoðað og breytt upplýsingum þínum undir „Mínar stillingar“ og beðið um að aðgangi og gögnum sé eytt með því að hafa samband við umsjónaraðila. Notkunarskrár eru geymdar í allt að 2 ár.